Um mig

Fjölskylda

Er fædd á Siglufirði 8. desember 1965 og býr í Rituhöfða 4. í Mosfellsbæ með manni sínum Erlendi Erni Fjeldsted byggingatæknifræðingi sem starfar hjá Nýsi og þremur börnum, þeim Ásdísi Magneu (1992), Sturlu Sæ (1995) og Sædísi Erlu (2003). Herdís er uppalin á Siglufirði og er dóttir hjónanna Sigurjóns Jóhannssonar skipstjóra og Ásdísar Magneu Gunnlaugsdóttur húsmóður. Herdís á tvö systkini þau Kristínu (1958) sem býr í Grindavík og Jóhann (1960) sem býr í Bandaríkjunum.

Menntun og störf

Lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1985, en fyrstu tvö ár framhaldsskólans var hún við nám í Reykjaskóla í Hrútafirði. Hún lauk BS.c próf í lífeindafræði frá Tækniháskóla Íslands 1989. Er í meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands og mun vinna að  meistaraverkefni sínu sem fjallar um uppbyggingu eftir náttúruhamfarir með áherslu á hlutverk og samskipti ríkis og sveitarfélaga.

Herdís vann við flest þau störf er tengjast fiski og fiskvinnslu á Siglufirði. Hún vann á bar á farþegaferjunni Norrönu hluta úr sumri. Eftir stúdentspróf 1985 flutti hún til Seattle í Bandaríkjunum og gerðist háseti á frystitogara í Alaska veturlangt. Hún vann á sjúkrahúsi Siglufjarðar við umönnunarstörf á sjúkradeild og einnig á öldrunardeild og rannsóknastofu á sumrin meðan á lífeindafræðináminu stóð. Herdís hóf störf á fisksjúkdómadeild Tilraunastöðvar HÍ á Keldum 1989 ? 1998 við fisksjúkdómarannsóknir og tók þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum. 

Starfaði á landsskrifstofu Rauða kross Íslands frá 1998 til haustsins 2007. Fyrst sem svæðisfulltrúi á höfuðborgarsvæði en frá 2001 og verkefnisstjóri í neyðarvörnum og neyðaraðstoð til haustsins 2007. Var m.a. ráðgjafi Rauða kross Íslands í málefnum er varða neyðarvarnir og neyðaraðstoð og gegnir fjölmörgum nefndum og ráðum vegna vinnunnar. Var varamaður í almannavarnaráði ríkislögreglustjórans, fulltrúi Rauða krossins í samræmingarnefnd vegna hjálparliðs almannavarna, ráðgjafi Rauða kross Íslands í hópslysateymi Flugmálastjórnar og hópslysaæfingum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans. Var fulltrúi í áhöfn Rauða krossins í Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð og hefur umsjón með starfi Rauða krossins í stöðinni sem og landsskrifstofu og samræmir viðbrögð félagsins á neyðartímum. 


Félagsstörf og pólitík

Herdís hefur verið bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ frá árinu 1998 og forseti bæjarstjórnar 2004 -2006. Hún hefur setið í ýmsum nefndum á vegum bæjarfélagsins. Formaður fræðslunefndar 2006 -, bæjarráð 2003 - 2004, 2005 - 2006, fjölskyldunefnd (formaður) 2002 - 2006, stjórn SORPU bs (varaformaður frá 2006) -, 2004 stjórn og fulltrúaráði hjúkrunarheimilis Eirar 2003 -, varamaður í stjórn Strætó bs 2006 -, varamaður í stjórn sambands sveitarfélags á höfðuðborgarsvæði (SSH) 2002 - 2005, almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins 2005 - og situr áhættugreiningarnefnd á vegum nefndarinnar frá 2004. Situr í stýrihópi staðardagskrár 21 á landsvísu fyrir hönd sambands íslenskra sveitarfélaga. Er varamaður í skólanefnd Borgarholtsskóla 2006-, varamaður í stjórn Fjölsmiðjunnar fyrir hönd SSH 2004-, umhverfisnefnd 1998 - 2002 og var fulltrúi sjálfstæðismanna í stýrihópi vegna Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ, varamaður í félagsmálanefnd 1998 - 2002.

Var kjörin í rekstrarstjórn fataflokkunar á höfuðborgarsvæði í maí 2008

Ritstörf

Herdís fór snemma að skrifa greinar um hin ýmsu mál og var hún m.a. ritstjóri blaðs Reykjaskóla og Varmár blaðs sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ auk þess að vera í ritstjórn. Hún gaf út fréttablað svæðisskrifstofu RKÍ á höfuðborgarsvæði og er umsjónarmaður neyðarvarnasíðu á netsíðu Rauða kross Íslands. Hún hefur skrifað vísindagreinar er tengjast fisksjúkdómum og eins fjölda greina um sveitarstjórnarmál í dagblöð, netsíður og bæjarblöð.

Netfang Herdísar er mailto:hes15@hi.is  og heimasíða www.herdis.blog.is

Today's page views: 26
Today's unique visitors: 8
Yesterday's page views: 29
Yesterday's unique visitors: 10
Total page views: 102943
Total unique visitors: 37778
Updated numbers: 16.5.2012 23:56:25